• Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
  • Pause
  • Previous
  • Next
1/9
 

Helstu upplýsingar

  • Á Eyjólfsstöðum er rekin gistiþjónusta allt árið í skólahúsi staðarins. Samtals 21 herbergi með 49 rúmum.
  • Í boði eru  uppábúin rúm eða svefnpokagisting með morgunmat í fallegu timburhúsi með  notalegum  morgunverðarsal og rúmgóðum  setustofum.
  • Herbergin eru allt frá þvi að vera  eins manns herbergi uppí fimm manna fjölskylduherbergi.
  • Öll herbergi eru nýlega endurnýjuð sem og salerni og sturtur. Herbergi okkar eru án baðs.
  • Gisting hjá okkur er mjög eftirsótt og því er gott að bóka tímanlega.
  • Á staðnum er þráðlaus nettenging.
  • Við bjóðum uppá tveggja eða þriggja rétta máltíð fyrir hópa sem eru 12 manns eða fleiri.
  • Í landi Eyjólfsstaða eru fallegar gönguleiðir í náttúru þar sem hægt er að njóta friðar og mikillar fegurðar. Hægt er að komast í veiði í Grímsá gegn vægu gjaldi.
  • Skógrækt er hluti af okkar starfsemi og hefur hún verið starfrækt síðan 1991 en miklar breytingar eru á landi staðarins í kjölfar skógræktar.
  • Staðurinn er aðeins í 9 km fjarlægð frá Egilsstöðum þar sem hægt er að fá fjölbreytta þjónustu, veitingastaðir, sundlaug og margt fleira.
  • Eyjólfsstaðir eru 9 km. fyrir sunnan Egilsstaði, við þjóðveg 1.  Í nágrenni Eyjólfsstaða eru margir fallegir staðir, svo sem Hallormsstaðaskógur, Atlavík, Skriðuklaustur og stutt er á Seyðisfjörð, Reyðarfjörð og Eskifjörð.

Hvar erum við

Eyjólfsstaðir eru á Fljótsdalshéraði, aðeins 9 km suður af Egilsstöðum. Húsin eru mjög sýnileg frá þjóðvegi 1, hvít með bláum þökum.
• sjá kort

Afþreying

Í Eyjólfsstaðaskógi eru merktar gönguleiðir sem er tilvalinn til útiveru. Stutt er í áhugaverða staði í nágrenni staðarins og alla þjónustu á Egilsstöðum.
• sjá nánar

Gisting

Á Eyjólfsstöðum er 21 herbergi í hlýlegu timburhúsi með setustofum, samkomusal og matsal. Boðið er uppá uppábúin rúm og svefnpokagistingu.
• skoða nánar

Skógræktin

Eyjólfsstaðir er skógræktarjörð, sem tekur þátt í skógræktarverkefninu Héraðsskógum í tæpa tvo áratugi.
• skoða nánar

Kirkjan

Íslenska Kristskirkjan er lútherskur fríkirkjusöfnuður, viðurkennt skráð trúfélag og veitir meðlimum sínum alla almenna kirkjulega þjónustu.
• Íslenska Kristskirkjan